Tillögur stjórnar KFUM og KFUK um breytingar á lögum félagsins voru samþykktar á aðalfundi KFUM og KFUK sem fram fór 6. apríl sl. Breytingarnar fela í sér:
- Að einstaklingar þurfa ekki lengur að vera orðnir 18 ára til að gerast fullgildi félagar, heldur nægir að verða 18 ára á árinu.
- Að ákvæði til að halda jöfnum kynjahlutföllum í stjórn gerir nú ráð fyrir fleiri en tveimur kynjum.
- Að fullgildir félagar þurfa ekki lengur að hafa verið tvö ár samfleitt í félaginu til að geta gefið kost á sér í stjórn félagsins.
Uppfærð lög félagsins má nálagst hér: Lagabreytingar samþykktar á aðalfundi