Karlaflokkur í Vatnaskógi 1. – 3. sept. 2023
Helgina 1. – 3. sept. verður karlaflokkur í Vatnaskógi, ætlaður karlmönnum á aldrinum 17-99 ára.
Tilgangur helgarinnar er að styrkja líkama, sál og anda. Líkaminn er styrktur með þátttöku í íþróttum, gönguferðum og vinnu fyrir Vatnaskóg. Andinn og sálin eru styrkt með erindum, biblíufræðslu, bænastundum, kvöldvöku og guðsþjónustu.
Verð á Heilsudaga karla er kr. 16.900. Hægt er að ganga frá skráningu á https://www.sumarfjor.is/Slot.aspx?id=2084 eða í síma 588-8899.
Föstudagur 1. september
15:15 Golfmót „VATNASKÓGUR OPEN“ (fyrir þá sem vilja).
Leikið verður á Brautarholtsvelli*
Umsjón: Ársæll Aðalbergsson
19:00 Léttur kvöldverður
20:00 Erindi: „Hvernig geta 100 ára félög orðið 200 ára?“
Dr. Pétur Pétursson
21:30 Frjáls tími
22:00 Kvöldhressing
22:30 Guðsorð fyrir svefninn
Matthías Guðmundsson
23:00 Bænastund í kapellu
23:30 Gengið til náða
Laugardagur 2. september
08:00 Vakið
08:20 Morgunteygjur og fánahylling
08:30 Morgunmatur
09:00 Biblíufræðsla: “Jónas – Kræfur karl og hraustur“
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
10:00 Vinna fyrir Vatnaskóg
11:00 „Ellefukaffi“
12:00 Matur
12:30 Höllun
13:00 Vinna fyrir Vatnaskóg
15:30 Kaffi
16:00 Fótboltaleikur á íþróttavelli, slökun í heitupottunum, veiði á vatninu ofl.
19:00 Hátíðarkvöldverður
20:30 Hátíðarkvöldvaka
Stjórnun: Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
Upphafsorð og bæn: „Vatnaskógur í heila öld“ – Sr. Ólafur Jóhannsson
Tónlistaratriði
Gengið í Vatnaskóg: Örnólfur, Nói og Kristján
Vatnaskógur í 100 ár: Þórarinn Björnsson
Hugleiðing: Dr. Gunnar Jóhannes Gunnarsson
22:30 Kvöldkaffi
23:15 Bænastund í kapellu
Sunnudagur 3. september
09:00 Vakið
09:20 Morgunteygjur og fánahylling
09:30 Morgunmatur
11:00 Guðsþjónusta í Leirárkirkju.
Sr. Þráinn Haraldsson, sóknarprestur í Garða- og Hvalfjarðarprestakalli
12:30 Matur
13:15 Heimför
* Á föstudeginum er í boði golfmót fyrir áhugasama. Leiknar verða 9 holur á Brautarholtsvelli. Tilkynna þarf sérstaklega ef menn hyggjast taka þátt í mótinu hjá: arsaell@kfum.is eða í síma 899-7746. Vallargjald greiðist á staðnum.
Vinna í þágu Vatnaskógar – verkefni:
- Byggingarvinna við nýjan matskála
- Endurnýja þakjárn Lerkiskála
- Endurnýja trjámerkingar í Lærdómslundi
- Snyrta gróður í kerjum við Birkiskála
- Lækka ræsi við vesturenda Birkiskála
- Tiltekt á geymslusvæði
- Mörg málningarverkefni ef veður leyfi
- Hreinsa þakrennur
- Létt inniverkefni
- Klippa marg-toppa grenitré
- Höggva eldivið
- Tína rusl