Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK fyrir 15-17 ára byggist á tveimur sjálfstæðum helgarnámskeiðum á vetri. Á milli námskeiða fá þátttakendur verklega þjálfun á vettvangi starfsins. Næsta námskeið verður haldið í Vindáshlíð dagana 21.–23. september 2018.
Á námskeiðinu er boðið upp á fræðslu fyrir 15–17 ára ungleiðtoga (fædda 2001–2003). Með leiðtogaþjálfuninni viljum við auka hæfni og efla sjálfstraust. Við viljum hjálpa ungu fólki að vera leiðtogar í eigin lífi og auka getu þeirra til að takast á við þau fjölmörgu tækifæri sem þeim bjóðast. Leiðtogaþjálfun KFUM og KFUK er hugsuð fyrir alla sem hafa áhuga á að starfa sem leiðtogar í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK, bæði í sumar- og vetrarstarfi félagsins.
Á sama tíma í Vindáshlíð verður jafnframt námskeið fyrir lengra komna (þau sem tóku þátt í leiðtogaþjálfun veturinn 2017–2018), þar sem farið verður dýpra í verkefni sem leiðtogar þurfa að takast á við.
Hvað er kennt?
Fræðslunni er skipt upp í fjóra efnisflokka og þess gætt að á hverju námskeiði sé eitthvað kennt úr hverjum flokki.
- K = kristin fræðsla
- F = félagsmálafræðsla
- U = ungmennalýðræði
- M = mannrækt
Skráning fer fram á skráningarsíðu KFUM og KFUK, www.sumarfjor.is, undirflokknum Vetrarstarf KFUM og KFUK.
Nánari upplýsingar má finna hjá Hjördísi Rós verkefnastjóra í síma 588-8899 eða á hjordis@kfum.is.