Í Ölveri 21.-23. september 2018 verður einstakt tækifæri til að upplifa sumarbúðahamingju.
Í kvennaflokknum verður boðið upp á alvöru sumarbúðakvöldvökur, slökun, hlátur, heitan pott, gönguferðir og fleira sem þessi dásamlegi staður hefur upp á að bjóða. Flokkurinn er fyrir konur frá 18 ára aldri.
Verð í flokkinn er 15.500 kr. og skráning er inn á sumarfjor.is og í síma 588-8899.
Verið hjartanlega velkomnar!
Dagskrá í kvennaflokki Ölvers 21.-23.september 2018
Föstudagur:
19:00 Kvöldmatur
-Mexíkósk kjúklingasúpa og meðí
21:00 Kvöldvaka – Erna Björk* verður með hugvekju
———Slökun & heitur pottur———-
Laugardagur :
09:30 Morgunmatur
-Morgunverðarhlaðborð
10:00 Fánahylling
10:15 Morgunstund – Fyrirlestur og umfjöllun með Thelmu Hrund* ”Í viðjum vanans”
11:00 Göngutúr
12:15 Hádegismatur
-Gourmet salathlaðborð
13:15 Frjáls tími – njóta staðarins
15:30 Kaffitími
16:00 Gleði og dekurstund fyrir kvöldið
19:00 Veislukvöldverður
-Lamabalærisveisla
21:00 Veislukvöldvaka – Erla Björg* verður með hugvekju
23:00 Veisklukvöldkaffi
———Heitur pottur———
Sunnudagur:
09:00 Létt morgunleikfimi
09:30 Morgunmatur
-Morgunverðarhlaðborð
10:00 Fánahylling
10:05 Morgunstund – Fyrirlestur og umfjöllun með Erlu Björg* ”Sjálfsástin”
11:15 Útivera eða innivera (fer eftir veðri)
12:15 Hádegismatur
-Sveppasúpa og nýbakað brauð
—— Taka til og ganga frá í herbergjum – Kveðjustund/Heimferð ——
Tímasetiningarnar eru bara til að styðjast við og er dagskrá birt með fyrirvara. Það er í sjálfsögðu hægt að mæta á laugardegi og vera fram á sunnudag, ef það hentar betur. Svo er gott að taka það fram að fólk tekur þátt í dagskránni eins og það treystir sér til.
*Erla Björg Káradóttir, markþjálfi og formaður Ölvers
*Thelma Hrund Sigurbjörnsdóttir, iðjuþjálfi (sér um yfirdagskrá flokksins)
*Erna Björk Harðardóttir, hjúkrunarfræðingur og stjórnarmeðlimur Ölvers