Helgina 7. -9. september verða Heilsudagar karla haldnir í Vatnaskógi. En Heilsudagar eru ætlaðir körlum á aldrinum 17-99 ára.
Tilgangur þeirra er að styrkja líkama, sál og anda.
- Líkaminn er styrktur með þátttöku í íþróttum, gönguferðum og vinnu í þágu Vatnaskógar.
- Andinn og sálin eru styrkt með erindum, bænastundum, kvöldvöku og messu.
Verð á Heilsudaga karla er kr. 8.900.
Hægt er að ganga frá skráningu á http://skraning.kfum.is eða í síma 588-8899.
Dagskrá Heilsudaga 2012
Föstudagur 7. september
16:00 Golfmót “VATNASKÓGUR OPEN“ Leikið verður á Þórisstöðum* (fyrir þá sem vilja)
19:00 Léttur kvöldverður
20:00 Erindi – Trúarbragðafræðsla í nútíma fjölmenningarsamfélagi – Dr. Sigurður Pálsson
21:30 Hreyfing: Innibolti, göngutúr, borðtennis, skák…
22:30 Kvöldhressing
23:00 Guðsorð fyrir svefninn – Halldór Elías Guðmundsson djákni
23:30 Bænastund í kapellu
24:00 Gengið til náða
Laugardagur 8. september
08:00 Vakið
08:20 Müllersæfingar og fánahylling
08:30 Morgunmatur
09:00 Biblíulestur – Guðlaugur Gunnarsson kristniboði
10:00 Vinnutími í þágu Vatnaskógar
11:00 „Ellefukaffi“
12:00 Matur
12:30 Höllun
13:00 Vinnutími í þágu Vatnaskógar
15:30 Kaffi
16:30 Fótboltaleikur, slökun í heitu pottunum ofl.
19:00 Hátíðarkvöldverður
20:30 Hátíðarkvöldvaka
Tónlistaatriði:Bjargræðiskvartettinn
Hugvekja: Séra Ólafur Jóhannsson
22:30 Kvöldkaffi
23:15 Bænastund í kapellu
Sunnudagur 9. september
09:00 Vakið
09:20 Müllersæfingar og fánahylling
09:30 „Brunch“ (morgun-hádegismatur )
10:15 Brottför úr Vatnaskógi
11:00 Messa í Brautarholtskirkju á Kjalarnesi – dr. Gunnar Kristjánsson
12:00 Úr sögu Brautarholtskirkju – dr. Gunnar Kristjánsson
12:15 Heimför
*Á föstudeginum verður í boði golfmót fyrir áhugasama. Leikið verður á golfvelli Þórisstaða sem er næsti bær til austurs við Vatnaskóg. Tilkynna þarf sérstaklega ef menn hyggjast taka þátt hjá: jonomar(hjá)kfum.is eða í síma 866-7917. Vallargjald eru frjáls framlög frá kr. 1.500.- til kr. 3.500.- þarf að greiða sérstaklega. Vallargjald rennur í Skálasjóð Skógarmanna. Ath. teiggjafir, vegleg verðlaun fyrir sigurvegara og verðlaun fyrir þann sem slær næst holu á 9. braut (par 3).