KFUM og KFUK á Íslandi óskar eftir að ráða framtíðarstarfsmann í fullt starf við skrifstofu – og afgreiðslustarf. Vinnutími er frá 9-17 alla virka daga.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðsla
- Símsvörun
- Umsjón með heimasíðu félagsins
- Umsjón með fréttabréfi félagsins
- Þjónusta við félagsfólk og viðskiptavini
Hæfniskröfur:
- Sjálfstæði, skipulagshæfni og frumkvæði í starfi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Almenn tölvukunnátta
- Rík þjónustulund
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og fagleg framkoma
- Grunnþekking á bókhaldi er kostur en ekki skilyrði
Umsóknir skulu berast Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Íslandi, Holtavegi 28, 104 Reykjavík fyrir 15. ágúst 2012 merkt „starfsumsókn“.