Stelpurnar voru vaktar klukkan hálf níu og borðuðu þær morgunmat klukkan níu. Síðan var fánahylling og biblíulestur í umsjá forstöðukonu. Í dag var boðið upp á skemmtilega dagskrá, hárgreiðslukeppni, brennókeppni og íþróttakeppni svo að yfir Ölveri sveif mikill keppnisandi i dag. Það var yndislegt veður og seinnipartinn fóru allar stelpurnar í pottinn. Á kvöldvökunni léku stelpur úr Skógarveri leikrit og allar stelpurnar skemmtu sér konunglega.
Matseðill dagsins:
Morgunmatur: hafragrautur, súrmjólk eða morgunkorn
Hádegisverður: Steiktur fiskur, kartöflur og grænmeti
Kvöldmatur: Grjónagrautur og brauð
Kvöldhressing: ávextir
Stelpurnar borða allar vel, eru duglegar og kraftmiklar. Þetta er mjög skemmtilegar og hressar stelpur.
Með góðum kveðjum
Ragnhildur Ásgeirsdóttir, forstöðukona