Nú um helgina, 1.-3.júní, fer árlegur feðginaflokkur fram í Vatnaskógi. Flokkurinn er ætlaður feðrum og dætrum frá 6 ára aldri.
Á dagskrá verða íþróttir, gönguferðir, kvöldvökur, fræðslustundir og margt fleira.
Að fara í feðginaflokk er gott tækifæri fyrir feður að koma í Vatnaskóg og rifja upp gamlar minningar um eða kynnast Vatnaskógi. Það er tilvalið fyrir dæturnar að fara með pabba í Vatnaskóg og hafa það skemmtilegt með honum.
Verð í feðginaflokk er kr.11.900 fyrir einstakling. Skráning fer fram í síma 588-8899 eða á skraning.kfum.is.
Ekki verður rúta á staðinn, en ef einhver þarf far, vinsamlega látið vita í síma 588-8899.
Hér fyrir neðan eru upplýsingar um flokkinn ásamt dagskrá.
Verið velkomin og góða skemmtun!
Nauðsynlegur farangur: Sæng eða svefnpoki, föt til skiptanna, íþróttaskó til notkunar í íþróttahúsi og annað sem þið teljið nauðsynlegt. Einnig er gott að hafa sundföt með í för en heitu pottarnir heilla marga.
DAGSKRÁ:
Föstudagur 1. júní
19:00 Kvöldmatur
20:00 Dagskrá
– Gönguferð – Bátar
– Íþróttahúsið opið
21:30 Kvöldvaka í Gamla Skála
Kvöldhressing
Laugardagur 2. júní
8:30 Vakið
9:00 Morgunverður
9:30 Fræðslustund í Gamla skála
10:15 Pabbaspjall
– Fræðslustund fyrir feður – Dagskrá fyrir stúlkur í íþróttahúsi á sama tíma
12:00 Hádegisverður
13:00 Dagskrá
– Frjálsar íþróttir á íþróttavelli – Bátar – Smiðjan opnar – Skógarferð
15:00 Kaffi
15:45 Dagskrá
– Knattspyrna – Kassabílarall – Íþróttahúsið opið
18:45 Hátíðarkvöldverður – veislukvöld í Matskála
20:00 Kvöldvaka að hætti hússins
21:30 Helgistund í Lindarrjóðri
22:00 Kvöldhressing í Matskála
Sunnudagur 3. júní
9:00 Vakið
9:30 Morgunverður
10:00 Dagskrá
– Íþróttahúsið – Bátar – Smiðjan opin
12:30 Hádegisverður
13:00 Kveðjustund
14:00 Brottför