Skógarmenn KFUM sendu í apríl út kynningarbækling um starfið í sumarbúðunum í Vatnaskógi. Bæklingurinn var sendur til 10 og 12 ára drengja á suðvesturhorni landsins. Í bæklingnum var stutt getraun um starfið þar sem í fyrstu verðlaun var dvöl í Vatnaskógi sumarið 2012, í önnur verðlaun var dvöl fyrir tvo í feðga- eða feðginaflokk 2012 og loks var þriðji vinningur boðsmiði fyrir alla fjölskylduna á Sæludaga 2012.
Nú er búið að draga út vinningshafa, sem eru eftirfarandi:
- vinningur – Dvöl í Vatnaskógi sumarið 2012 fór til Jökuls Jóhanns Ársælssonar.
- vinningur – Dvöld fyrir tvo í feðga- eða feðginaflokki 2012 fór til Sólons Nóa Sindrasonar.
- vinningur – Boðsmiði fyrir fjölskylduna á Sæludaga 2012 fór til Haralds Steinars Skúlasonar.
Við óskum þeim hjartanlega til hamingju.