Í kvöld, þriðjudaginn 3. apríl í dymbilviku, verður enginn fundur hjá AD KFUK.
Næsti fundur hjá AD KFUK verður þriðjudaginn 17. apríl, en þá er efni fundarins: „Þrep til velsældar – líkami, sál og andi“ í umsjá Ragnheiðar Grétarsdóttur jógakennara.
Fimmtudaginn 12. apríl verður farið í sameiginlega Vorferð AD KFUM og AD KFUK.
Þriðjudaginn 24.apríl verður Afmælisfundur KFUK og sérstök KFUK-Vorferð í Hvalsneskirkju (í umsjá sr. Sigurðar Grétars Sigurðssonar).
Nánari upplýsingar má fá hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899.
Gleðilega páska!