Hefur þú áhuga á mannréttindum?
Nú styttist í að Kompás-námskeiðið, sem er mannréttinda – og lýðræðisfræðsla fyrir ungt fólk, hefjist á Holtavegi 28 í Reykjavík. Æskulýðsvettvangurinn (samstarf KFUM og KFUK, BÍS og UMFÍ) stendur fyrir námskeiðinu, sem verður haldið dagana 29.september– 2.október 2010.
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur bókinni Kompás, sem var nýlega þýdd á íslensku og hefur reynst vel í mannréttindafræðslu víða um Evrópu. Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim sem vilja nota Kompás-bókina í vinnu sinni með ungu fólki og leiðbeina öðrum um notkun hennar. Þjálfarar námskeiðsins koma frá Bretlandi, Serbíu og Íslandi.
Námskeiðið verður haldið í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28, Reykjavík dagana 29. september – 2. október 2010 kl. 8.30-17.00.
Þátttökugjald er kr. 9.000. Innifalið í því er Kompásbókin, hádegismatur og tveir kaffitímar þá daga sem námskeiðið er haldið.
Einungis eru nú fimm pláss laus á námskeiðið, svo það fer hver að verða síðastur að skrá sig.
Gert er ráð fyrir 25 manns á námskeiðið
Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna á
www.kfum.is/namskeid
eða hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899.
Upplýsingar um texta bókarinnar Kompás er að finna hér:
http://nams.is/kompas/ .
Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á
hjordis@kfum.is á meðan pláss leyfir.