Markmið

Að börnin þekki söguna um komu Jesúbarnsins í heiminn.

Biblíuvers

Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. (Lúk. 2:11)

Inngangur

Nú er tími aðventunnar, sem þýðir koma, konungskoma. Á aðventunni erum við að undirbúa jólin, komu Jesú Krists, sonar Guðs. Margir eru mjög uppteknir því það þarf að ljúka svo mörgu áður en jólin koma. Við bökum, gerum hreint, kaupum gjafir og svo mætti lengi telja. Stundum verður þetta til þess að það sé eins og aðalgesturinn, sá sem er að koma, verði útundan og gleymist, þegar menn keppast við að undirbúa hátíðina og leitast við að gera allt sem best úr garði. Við þurfum að gæta þess að Jesú týnist ekki í öllu pakkaflóðinu og veisluhöldunum.

Jólaguðspjallið

– Lúk. 2:1-20

En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin er gerð var, þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar. Fór þá einnig Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni, sem var þunguð. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að eigi var rúm handa þeim í gistihúsi. En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim, og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir, en engillinn sagði við þá:

„Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.“

Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: „Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á.“ Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himins, sögðu hirðarnir sín á milli: „Förum beint til Betlehem að sjá það, sem gjörst hefur og Drottinn hefur kunngjört oss.“ Og þeir fóru með skyndi og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið, sem lá í jötu. Þegar þeir sáu það, skýrðu þeir frá því, er þeim hafði verið sagt um barn þetta. Og allir, sem heyrðu, undruðust það, er hirðarnir sögðu þeim. En María geymdi allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það.

Og hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu Guð og lofuðu hann fyrir það, sem þeir höfðu heyrt og séð, en allt var það eins og þeim hafði verið sagt.

Samantekt

Á hverjum jólum, heyrum við þessi gleðitíðindi: „Yður er í dag frelsari fæddur.“ Við fögnum þeim og erum glöð með fjölskyldum okkar. Það skiptir mestu máli, að gleði okkar sé vegna þess, að við höfum eignast frelsara, sem sætti okkur við Guð.

Mikilvægt er að við höfum rúm fyrir Jesú í hjörtum okkar og lífi. Gætum þess að ekkert verði til þess að hindra það.

Það skiptir ekki máli, að ekki var rúm fyrir Jesú í gistihúsinu, heldur að að það sé rúm fyrir hann í lífi okkar.

Bæn

Vertu Guð faðir