Upphafsbæn
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.

Minnisvers
Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. Matt. 7:7.

Aðalatriðið
Við megum alltaf, alls staðar segja Guði allt. Og við getum treyst því að hann hlustar.

Hugleiðing
Í Biblíunni er sagt frá því að Jesús hafi farið á óbyggða staði til þess að biðjast fyrir. Hann var oft einn með Guði í ró og næði og bað. Stundum bað hann líka þegar margir voru nálægir. Þegar lærisveinar Jesú báðu hann um að kenna sér að biðja kenndi hann þeim bænina ,,Faðir vor“. Þar kenndi hann þeim að ávarpa Guð sem föður sinn, en Guð er faðir okkar allra því hann skapaði okkur. Það skiptir Guð miklu máli að við höfum það gott því hann elskar okkur skilyrðislaust og er alltaf til staðar.

Bænina gaf hann okkur svo við getum verið í stöðugu sambandi við hann eins og vinur talar við vin. Við getum sagt Guði allt, jafnvel það sem við getum ekki sagt neinum öðrum. Hann hlustar alltaf á okkur, hvar sem er og hvenær sem er og hann svarar okkur.

Það er mikilvægt að tala um alla hluti við Guð, stóra og smáa. Það er sérstök gjöf Guðs til okkar að við megum segja honum allt, leggja allt í hans hendur. Í Filippíbréfinu í Nýja testamentinu stendur að við eigum að gera í öllum hlutum óskir okkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.

Bænin er einkasamtal milli þín og Guðs. Það er nauðsynlegt að eiga vin sem við treystum fyrir öllu, Guð vill vera sá vinur fyrir þig. Við þurfum að vera heiðarleg, hreinskilin og hafa tíma fyrir Guð. Bænin er vináttusamband milli þín og Guðs. Guð gaf okkur bænina því Guð ber umhyggju fyrir okkur og vill fá að uppfylla þarfir okkar. Að biðja er að orða óskir okkar og þarfir fyrir Guði en um leið að hlusta á Guð og vera opin fyrir vilja hans og hjálp.

Umræðupunktar
Stundum getur verið erfitt að biðja með eigin orðum og það eru til fjölmörg bænavers og ólíkar tegundir.

  • Kunnið þið einhver bænavers?
  • Getum við beðið Guð um hvað sem er?
  • Ef tveir vinir eru að tefla og báðir biðja til Guðs um að þeir vinni skákina, hvað gerir Guð þá?

Flóð í Hvergilandi – Um bænheyrslu
Einhverju sinni kom mikið flóð í Hvergilandi. Einn íbúi landsins taldi sig mjög trúaðan og góðan mann. Þegar vatnið byrjaði að leka inn á stofugólfið kraup hann niður og bað Guð um að bjarga sér.

Skömmu síðar var bankað og fyrir utan stóðu menn í flotgöllum á stórum jeppa og buðust til að keyra hann á öruggt svæði, enda von á meiri vatnsflaumi. En góði og trúaði maðurinn sagði þeim að bjarga öðrum, hann sjálfur hefði beðið til Guðs og væri þess fullviss að Guð myndi bjarga honum.

Vatnsborðið hækkaði enn og sögupersónan okkar þurfti að flýja upp á aðra hæð, enda var flóðið svo mikið að öll neðri hæðin hans var farin á bólakaf. Þar kraup hann við gluggann í svefnherberginu sínu og bað Guð um björgun þegar björgunarbát lagði að við gluggann. Í bátnum voru nokkrir votir nágrannar og hjálparsveitarmenn sem sögðu honum að hoppa um borð, því enn væri von á meira vatni. En okkar maður hélt nú ekki. Hann væri sanntrúaður og Guð myndi bjarga honum. Og báturinn sigldi burt.

Enn leið og beið, vatnið óx og óx og nú var trúaði maðurinn okkar kominn upp á þak og hélt sér dauðahaldi í skorsteininn, jafnframt því að biðja til Guðs ákafar enn nokkru sinni, enda færðist vatnið nær og nær. Þá birtist þyrla í fjarska sem flaug í átt að húsinu hans og staðnæmdist fyrir ofan hann. Sigmaður seig niður úr þyrlunni og bauð manninum far, enda ljóst að hann myndi drukkna að öðrum kosti. Maðurinn bandaði sigmanninum frá sér og sagði: Ég er trúaður og ég hef beðið Guð að hjálpa mér. Ég veit að hann gerir það. Sigmaðurinn sá að ekki yrði tauti við hann komið, gaf merki og var dreginn einn upp í þyrluna, en trúaði maðurinn okkar beið áfram björgunar Guðs. Eftir fáeinar mínútur drukknaði hann svo.

En sögunni líkur ekki þar. Trúaði maðurinn okkar endaði í himnaríki og um leið og hann hafði gengið inn um Gullna hliðið strunsaði hann á fund Guðs. Þar sem hann mætti Guði öskraði hann: Hvað er að þér Guð, ég bað til þín ítrekað. Ég lagði allt mitt traust á þig og þú lést mig drukkna. Af hverju?

Guð leit á hann rólegur og sagði: Þegar þú baðst í fyrsta skipti, sendi til þín menn á bíl að bjarga þér. Þá sendi ég björgunarbát og loks sendi ég þyrlu. En aldrei heyrðir þú bænasvarið.

En þegar við leggjum allt fram fyrir Guð í bæninni okkar verðum við samt að muna að Guð gerir ekki alltaf eins og við viljum. Og sú hætta er meira að segja fyrir hendi að svarið sé öðruvísi en við höfðum séð fyrir okkur, líkt og hjá manninum í sögunni hér að ofan.

Guð svarar ýmist já, nei eða bíddu við. Stundum finnst okkur hann e.t.v. óréttlátur en þá megum við líka segja honum það. Við getum þó verið fullviss um að Guð svarar alltaf bænum okkar í fullkomnum kærleika og visku þó það sé ekki endilega alltaf í samræmið við okkar hugsanir, langanir eða væntingar.

Aukaefni
Sagan um Óskirnar tíu úr bókinni Við Guð erum vinir.
– Þakkarkarfan – Verkefni sem minnir okkur á mikilvægi þess að þakka Guði.