Um samveruna

Hvað er það? Svar: Að ég má vera viss um, að slíkar bænir séu þóknanlegar föðurnum á himnum og verði bænheyrðar, því að hann hefir sjálfur boðið oss að biðja þannig og heitið oss bænheyrslu sinni. Amen, amen, það þýðir: Já, já, svo skal verða.

Markmið samverunnar

Markmið samverunnar er að minna okkur öll á að á Guð hefur skapað alla hluti og fyrir það eigum við að þakka honum.

Biblíutextinn

Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. Jörðin var þá auð og tóm. Myrkur grúfði yfir djúpinu en andi Guðs sveif yfir vötnunum.

Þá sagði Guð: „Verði ljós.“ Og það varð ljós. Guð sá að ljósið var gott og Guð greindi ljósið frá myrkrinu. Guð nefndi ljósið dag en myrkrið nótt.

Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fyrsti dagur.

Þá sagði Guð: „Verði festing milli vatnanna og hún greini vötn frá vötnum.“ Þá gerði Guð festinguna. Skildi hún milli vatnanna sem voru undir festingunni og vatnanna sem voru yfir festingunni. Og það varð svo. Og Guð nefndi festinguna himin.

 Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn annar dagur.

Þá sagði Guð: „Vötnin undir himninum safnist saman í einn stað og þurrlendið komi í ljós.“ Og það varð svo. Guð nefndi þurrlendið jörð og safn vatnanna nefndi hann haf. Og Guð sá að það var gott. Þá sagði Guð: „Jörðin láti gróður af sér spretta, sáðjurtir og aldintré af öllum tegundum jarðar sem bera ávöxt með sæði.“ Og það varð svo. Jörðin lét gróður af sér spretta, alls kyns sáðjurtir og aldintré af öllum tegundum sem bera ávöxt með fræi.

Og Guð sá að það var gott. Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn þriðji dagur.

Þá sagði Guð: „Verði ljós á hvelfingu himins til þess að greina dag frá nóttu. Þau skulu vera tákn til þess að marka tíðir, daga og ár og þau skulu vera ljósgjafar á festingu himins til þess að bera jörðinni birtu.“ Og það varð svo. Guð gerði tvö stóru ljósin, stærra ljósið til að ráða degi og minna ljósið til að ráða nóttu, og einnig stjörnurnar. Og Guð setti þau á festingu himinsins til þess að bera jörðinni birtu og ráða degi og nóttu og til að greina ljós frá myrkri.

Og Guð sá að það var gott. Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fjórði dagur.

Þá sagði Guð: „Vötnin verði kvik af lífverum og fuglar fljúgi yfir jörðinni undir hvelfingu himins.“ Og Guð skapaði hin stóru sjávardýr og alls kyns skepnur, sem lifa og hrærast og vötnin eru kvik af, og alla fleyga fugla eftir þeirra tegundum. Og Guð sá að það var gott.
22Guð blessaði þau og sagði: „Frjóvgist og fjölgið ykkur og fyllið vötn sjávarins og fuglum fjölgi á jörðinni.“

Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fimmti dagur.

Þá sagði Guð: „Jörðin leiði fram lifandi skepnur, hverja eftir sinni tegund, búfé, skriðdýr og villidýr, hvert eftir sinni tegund.“ Og það varð svo. Guð gerði villidýrin, hvert eftir sinni tegund, búfé eftir sinni tegund og hvers konar skriðdýr jarðarinnar eftir sinni tegund. Og Guð sá að það var gott. Þá sagði Guð: „Vér viljum gera manninn eftir vorri mynd, líkan oss. Hann skal drottna yfir fiskum sjávarins, fuglum loftsins, búfénu, villidýrunum og allri jörðinni og öllum skriðdýrum sem skríða á jörðinni.“ Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd. Hann skapaði hann eftir Guðs mynd. Hann skapaði þau karl og konu. Guð blessaði þau. Og Guð sagði við þau: „Verið frjósöm, fjölgið ykkur og fyllið jörðina, gerið ykkur hana undirgefna og ríkið yfir fiskum sjávarins og fuglum himinsins og öllum dýrum sem hrærast á jörðinni.“

Og Guð sagði: „Nú gef ég ykkur allar sáðjurtir jarðarinnar og öll aldintré sem bera ávöxt með fræi. Þau skulu vera ykkur til fæðu. Og öllum dýrum jarðarinnar, öllum fuglum himinsins, öllum skriðdýrum jarðarinnar, öllu sem hefur lífsanda í sér, gef ég öll grös og jurtir til fæðu.“ Og það varð svo.

Og Guð leit allt sem hann hafði gert, og sjá, það var harla gott. Og það varð kvöld og það varð morgunn, hinn sjötti dagur. 1M 1.1-31

Að nálgast efni dagsins

  • Hér er um síðustu samveru vetrarins að ræða. Sniðugt er að láta ungmennin útbúa plakat til að ramma inn með Faðir vorinu og skreytingu í kring. Slíkt plakat geta þau svo hengt upp yfir rúmið sitt svo dæmi sé tekið.
  • Eins má útbúa þakkarbænakörfu og bjóða ungmennunum að leggja í körfuna litla miða sem á standa bænir þar sem við þökkum góðum Guði fyrir eitthvað sem við eigum, höfum þegið frá honum.

Hugleiðing

„Í upphafi skapaði Guð himinn og jörð.“ Þannig byrjar Biblían. Bókin sem segir okkur frá því hver Guð er, hvað Jesús gerði. Mörgum finnst erfitt að skilja að Guð hafi skapað allt, líka hið illa. Öðrum finnst erfitt að skilja og festast í því hvernig Guð á að hafa skapað allt. Þessum tveimur spurningum er enda erfitt að svara.

En í Biblíunni er samt mikilvægustu spurningunni svarað. Hvers vegna skapaði Guð heiminn og allt sem í honum er?

Svar Biblíunnar er á þá leið að Guð hafi skapað heiminn mannsins vegna og manninn hafi Guð skapað til að eiga samfélag, samskipti við sig. Guð vill nefnilega að allir menn kynnist sér og eigi eilíft líf með honum. Einmitt þess vegna skapaði Guð heiminn.

Fyrir vonina um eilíft líf í ríki Guðs megum við þakka Guði og í lokaorðum Faðir vorsins þá gerum við einmitt það.

Við þökkum og lofum Guð fyrir það að hann hefur skapað alla hluti og gefið okkur von um eilíft líf.

Framhaldssaga – Við Guð erum vinir

  • Þakkarkarfan, bls. 111-116

Söngvar

  • Stjörnur og sól
  • Hver hefur skapað