Alþjóðaráð KFUM og KFUK hvetur leiðtoga og áhugasamar félagskonur að sækja um námskeiðið Digital Superpowers: Loading… sem verður haldið í Strasbourg á vegum KFUK í Evrópu.

Nafn viðburðar: Study Session – Digital Superpowers: Loading…
Skipuleggjandi:  KFUK í Evópu
Dagsetning:  12.-15. desember 2016 (plús ferðadagar)
Staðsetning:  Strasbourg, Frakklandi
Kostnaður sem fellur á þátttakanda:  50 evrur og umsýslugjald, 10.000 kr.
Aldurstakmörk:  Konur á aldrinum 18-30 ára

Athugið! Umsóknarfrestur er til miðnættis 14. október!

Nánari upplýsingar:
Dagana 12.-15. desember nk. stendur KFUK í Evrópu fyrir námskeiði (study session) í Strasbourg, í samráði við Evrópuráðið (Council of Europe). Á námskeiðinu verða 35 konur á aldrinum 18-30 ára. Markmið námskeiðisins er að stuðla að valdeflingu meðal kvenna í gegnum tækni. Þar verður meðal annars fjallað um tækni, kyn og mannréttindi, kenndar aðferðir til að auka hæfni og þekkingu á nútímatækni til að hafa áhrif á heiminn ásamt því að byggja upp tengslanet.

Alþjóðaráð KFUM og KFUK á Íslandi mun fara yfir umsóknirnar og velja úr. Allir umsækjendur verða látnir vita hvort þeir hafi komist að eða ekki. Að lokum mun KFUM og KFUK sækja um að fá að senda viðkomandi einstaklinga á námskeiðið.
Þegar farið er í gegnum umsóknir sem berast fyrir þátttöku á viðburðum erlendis á vegum Alþjóðaráðs KFUM og KFUK á Íslandi eru nokkur atriði sem spila inn í valið á þátttakanda.

-Sú þekking sem af viðburðunum hlýst þarf að nýtast þeim einstaklingi sem það sækir og félaginu í heild.
-Einstaklingurinn þarf að vera virkur sjálfboðaliði og/eða starfsmaður innan félagsins, þekkja stefnu þess og starf og bera hag þess fyrir brjósti.
-Valið byggir að mestu leyti á þeirri umsókn sem umsækjendur skila inn. Gæði umsóknar og vandvirkni við vinnslu hennar skipta miklu máli.
-Reynt er að kynna sér einstaklinginn með því að spyrjast fyrir um hann.
-Þekking, reynsla eða sérstakur áhugi á því sem námskeiðið fjallar um er ávallt plús.

Ef óskað er eftir nánari upplýsingum hafið samband við Önnu Elísu með tölvupósti á annae89(hjá)gmail.com eða í s. 849-9863.

[form utlond]